Þú Veist Í Hjarta Þér

Þú veist í hjarta þér
Kvað vindurinn
Að vegur drottnarans er ekki þinn
Heldur þar sem gróandaþytur fer
Og menn þerra svitann af enni sér
Og tár af kinn

Þú veist í hjarta þér
Kvað vindurinn
Að varnarblekkingin
Er dauði þinn
Engin vopnaþjóð er að vísu frjáls
Og að vanda sker hún sig fyrr á háls
En óvin sinn

Þú veist í hjarta þér
Kvað vindurinn
Að vald og ríki'er ekki
Manngrúinn
Hvað þarf stóra þjóð til að segja satt
Til að sólarljóð hennar ómi glatt
I himininn?

Curiosità sulla canzone Þú Veist Í Hjarta Þér di Hjálmar

Quando è stata rilasciata la canzone “Þú Veist Í Hjarta Þér” di Hjálmar?
La canzone Þú Veist Í Hjarta Þér è stata rilasciata nel 2007, nell’album “Ferðasót”.

Canzoni più popolari di Hjálmar

Altri artisti di Reggae music