Kona

Kári Stefánsson, Þorsteinn Einarsson

​​Bærðist ekkert utan hjarta
​einn á gangi og nóttin bjarta
​bjó þig til
​nætur sumars, sumar nætur
​suma okkar heppna lætur​
​finna ást sem aldrei dvínar
​ætíð finnur rætur sínar
​þótt árin líði og öllu breyti
​utan þér

​þú ert ennþá ilmur blóma
​ennþá sveipuð skærum ljóma
​seiðandi bjartrar sumarnætur
​sem mér ávallt finnast lætur
​að friðurinn sé hér
​í mínu gamla höfði og hjarta
​hrekur burtu rökkrið svarta
​kveikir ljós

​Bærðist ekkert utan hjarta
​einn á gangi og nóttin bjarta
​bjó þig til
​eins og blóm í haustsins haga
​hátíð gerir alla daga
​það er ekkert eins og þú
​ástin mín fagra þá og nú

Curiosità sulla canzone Kona di Hjálmar

Chi ha composto la canzone “Kona” di di Hjálmar?
La canzone “Kona” di di Hjálmar è stata composta da Kári Stefánsson, Þorsteinn Einarsson.

Canzoni più popolari di Hjálmar

Altri artisti di Reggae music