Samhljómur

Asgeir Trausti Einarsson, Einar Georg Einarsson, Gudmundur Kristinn Jonsson

Nú er ég sál er fleytir fjörð og kyndir
uppsker fjörur hreinar gæfulindir
augun líta himin, haf og tóna
augun horf´ og leita þess sem leita má
liggja flötum maga, hugsa, spá
samhljómur, í fyrr og nú

hver er sá er kylliflatur fellur
einhver falinn hinsta baulið gellur
augun líta grasi gróna skóna
augun geyma drauma þess sem dreyma má
dali yfirfyllt´ af von og þrá
samhljómur, því ég er þú

Nú er ég sál er fleytir fjörð og kyndir
uppsker fjörur hreinar gæfulindir
augun líta grasi gróna skóna
augun geyma drauma þess sem dreyma má
dali yfirfyllt´ af von og þrá
samhljómur, því ég er þú

Curiosità sulla canzone Samhljómur di HOGNI

Chi ha composto la canzone “Samhljómur” di di HOGNI?
La canzone “Samhljómur” di di HOGNI è stata composta da Asgeir Trausti Einarsson, Einar Georg Einarsson, Gudmundur Kristinn Jonsson.

Canzoni più popolari di HOGNI

Altri artisti di Scandinavian pop rock