​blóðsugan

Elín Hall

[Erindi 1]
Háski í bíóhúsi háskólans
Gotneskur glans
Hrifningin hrollvekjandi úr augum hans
Heiðingjans
Blóðsugan brýtur engin loforð
Þó henni bjóðist betra vín
En ég er ekki lengur þín

[Viðlag]
Ég skal fara og vona að hjartað
Fylgi á eftir mér
Læra að sjá þig elska einhvern 
Sem er ekki ég
Og sama hvort að myndin endi vel
Þá vil ég að allir viti að þú sérð ekki liti

[Erindi 2]
Flöktandi ljósastaurar
Freðin tár
Fangar vanginn blár
Krýpur í kirkjugarði greifinn sár
Fölur og grár
Upprisin hrópar uppvakningur:
Það er síbreytilegt spil
Að elska skrímsli eins og þig

[Viðlag]
Ég skal fara og vona að hjartað
Fylgi á eftir mér
Læra að sjá þig elska einhvern
Sem er ekki ég
Og sama hvort að myndin endi vel
Er ég frekar viss um að þú hafir skemmt hana fyrir mér
Og ég tengdi aldrei við þig og þessar svarthvítu myndir

Curiosità sulla canzone ​blóðsugan di Elín Hall

Quando è stata rilasciata la canzone “​blóðsugan” di Elín Hall?
La canzone ​blóðsugan è stata rilasciata nel 2023, nell’album “heyrist í mér?”.

Canzoni più popolari di Elín Hall

Altri artisti di